Hátíðardagskrá Sjómannadagsins 2023

  • Kl. 10:00 verður athöfn við Minningaröldur Sjómannadagsins í Fossvogskirkjugarði. Sr. Elínborg Sturludóttir annast athöfnina. Heiðursvörð standa starfsmenn Landhelgisgæslunnar.
  • Kl. 11:00 Hátíðarmessa í Dómkirkjunni á sjómannadaginn. Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardottir prédikar og séra Elínborg Sturludóttir þjónar fyrir altari. Lesarar frá Landhelgisgæslunni. Meðan á guðþjónustu stendur verður lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins.
  • Kl. 14:00 hefst Heiðrun Sjómanna í Flóa í Hörpu . Gerður G. Bjarklind er kynnir. Karlakórinn Fóstbræðra syngur. Heiðrun sjómanna og ávörp verða flutt.