Í tilefni af sjómannadeginum eru allir boðnir velkomnir endurgjaldslaust á Sjóminjasafnið í Reykjavík.
Sjómannadagurinn er fjölskylduhátíð sem fjallar um allt sem viðkemur hafinu, menningu tengda sjómennsku, skip, sjómenn, fisk, ýmsan fróðleik og sjómannalögin góðu í bland við góða skemmtun. Sjómannadagurinn hefur náð að vaxa og dafna undanfarin ár og er nú orðin ein af stærri hátíðum í Reykjavík en rúmlega 40.000 manns lögðu leið sína niður að höfninni í fyrrasumar. Árið 2017 voru 100 ár liðin frá því að fyrsta áfanga hafnargerðar í Gömlu höfninni í Reykjavík lauk og 80 ár liðin frá því að Sjómannadagsráð var stofnað. Að hátíðinni standa Faxaflóahafnir, Sjómannadagsráð og Brim.