Hátíðardagskrá Sjómannadagsins 2022

  • Kl. 10:00 verður athöfn við Minningaröldur Sjómannadagsins í Fossvogskirkjugarði. Sr. Sveinn Valgeirsson flytur minningarorð og bæn. Heiðursvörð standa starfsmenn Landhelgisgæslunnar.
  • Kl. 11:00 Hátíðarmessa í Dómkirkjunni á sjómannadaginn. Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardottir prédikar og séra Sveinn Valgeirsson sóknarprestur Dómkirkjunnar þjónar. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar, dómorganista sem einnig leikur á orgelið. Bryndís Guðjónsdóttir syngur einsöng. Lesarar frá Landhelgisgæslunni. Meðan á guðþjónustu stendur verður lagður blómsveigur á leiði óþekkta sjómannsins.
  • Kl. 14:00 hefst Heiðrun Sjómanna í Hörpuhorni í Hörpu . Gerður G. Bjarklind er kynnir. Karlakórinn Fóstbræðra syngur. Heiðrun sjómanna og ávörp verða flutt.