Á myndinni frá vinstri: Elísabet Sveinsdóttir, Sigurður Jökull Ólafsson, Torfi Þ. Þorsteinsson, Kristjana Björk Magnúsdóttir, Helgi Laxdal, Aríel Pétursson, Eggert S. Jónsson, Anna Björk Árnadóttir og Elsa Harðardóttir.

Sjó­mannadag­ur­inn verður hald­inn hátíðleg­ur í Reykja­vík sunnu­dag­inn 2. júní nk. Mikil spenna ríkir í herbúðum þeirra sem standa að hátíðinni enda má gera ráð fyrir fjölmenni við höfnina á Granda þar sem Sjóaranum síkáta, hátíðarhöldum Grindvíkinga, hefur verið boðið að taka þátt.  

Sú rómaða sjómannadagshátíð “Sjóarinn síkáti” sem haldin hefur verið í Grindavík í rúman aldarfjórðung verður á þessu ári við Reykjavíkurhöfn í ljósi aðstæðna í bænum. Faxa­flóa­hafn­ir, Sjó­mannadags­ráð og Brim eru bak­hjarl­ar Sjómannadagsins í Reykjavík og buðu Grindvíkingum að taka þátt og nota aðstöðuna við höfnina í höfuðborginni.

“Snemma árs fengum við hjá Grindavíkurbæ símtal frá formanni Sjómannadagsráðs þar sem hann bauð okkur um borð ef svo má að orði komast, þar sem ljóst var að ekki gæti orðið að hátíðarhöldum í bænum okkar. Við þurftum ekki langan umhugsunarfrest og þáðum boðið og því geta Grindvíkingar og landsmenn allir notið Sjóarans síkáta í ár eins og undanfarin 26 ár”, segir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur.

“Við ætlum að tjalda öllu til og taka vel á móti heiðursgestum sjómannadagsins 2024, Grindvíkingum, sem nú fá heimaskjól fyrir Sjóarann síkáta við höfnina á Granda. Þegar þeir þáðu boðið hlýnaði í mínum hjartarótum enda hafa þeir gert sjómannadeginum einstaklega hátt undir höfði í fjölda ára og haldið veglega 3ja daga veislu í bænum, sjómönnum til heiðurs”, segir Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs. 

Und­ir­bún­ing­ur hefur staðið yfir í hálft ár en það er viðburðarfyrirtækið Eventum ásamt markaðs- og kynningarstjóra hátíðarinnar, Elísabetu Sveinsdóttur sem hafa leitt þá vinnu.

Nánari upplýsingar veitir Elísabet Sveinsdóttir, sími 8407145