• Á hverju ári er áætlað að hundrað slys verði á sjófarendum • Nýtt skráningarkerfi svarar ákalli um áreiðanlegar tölulegar upplýsingar • Þróun kerfisins átti sér stað hjá VÍS en það er nú á hendi Samgöngustofu
Nýtt miðlægt skráningarkerfi sjóslysa, ATVIKsjómenn, var tekið í gagnið fyrr á þessu ári. Vonir standa til þess að kerfið muni ekki aðeins einfalda skráningu slysa og „næstum því“-slysa á sjó, heldur jafnframt að upplýsingarnar megi nota í gagnadrifnu forvarnarstarfi sem svo fækki óhöppum enn frekar. Einn umsjónarmanna kerfisins segir að með tilkomu þess gætu Íslendingar náð forystu í slysaskráningum og öðlast ómetanlegar upplýsingar til framtíðar.
Áætlað er að á annað hundrað slys verði á sjófarendum á hverju ári. Að sögn Þorsteins Þorkelssonar, sérfræðings í öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu, hefur það þó reynst þrautin þyngri að viðhalda yfirsýn yfir óhöppin, þar sem tölur um slys á sjó eru geymdar víða og bundnar mismunandi takmörkunum.
„Okkur vantar betri tölur um slys á sjó á Íslandi,“ segir Þorsteinn.
„Við erum með tölur frá rannsóknarnefnd samgönguslysa en við sjáum líka að gríðarlega mörg slys eru tilkynnt beint til Sjúkratrygginga og tryggingarfélaga sem fara ekki í rannsókn hjá nefndinni. Við náum því ekki almennilega utan um hvað er að gerast í þeim tilfellum, því við erum einfaldlega ekki með þær upplýsingar.“
Gjöf frá VÍS
Nýja skráningarkerfið, sem fékk heitið ATVIK-sjómenn, er hugsað sem svar við þessari upplýsingaóreiðu.
Þorsteinn segir að ATVIK-sjómenn eigi uppruna sinn hjá VÍS, þar sem það nýttist sem atvikaskráningarkerfi. Fólk hafi þó áttað sig á því að kerfið byði upp á meira en að þjónusta einungis viðskiptavini VÍS og því hafi farið af stað umræða um að gefa opinberum aðilum kerfið. Það hafi að lokum orðum raunin þegar RNSA fékk kerfið í sína eigu og Samgöngustofa fari nú með umsjón þess. Síðan þá hefur kerfið „þróast á mjög skemmtilegan hátt eftir samtal RNSA, samgönguyfirvalda og VÍS,“ eins og Þorsteinn kemst að orði.
Í október 2022 fór í loftið nýtt ATVIK-sjómenn sem er aðgengilegt öllum útgerðum til notkunar þeim að kostnaðarlausu. Þorsteinn segir að síðustu mánuðum hafi verið varið í kynningu, þróun og nýskráningum í kerfið, sem hafi gengið vonum framar.
Er nú svo komið að 13 af 20 stærstu útgerðum landsins eru komnar í ATVIK-sjómenn og segir Þorsteinn að vonir standi til að allar útgerðir verði komnar þangað áður en langt um líður.
Það sé gríðarlega mikilvægt að flestir sjófarendur nýti sér kerfið, einmitt til þess að það uppfylli markmið sitt um að ná betur utan um óhöpp á sjó. Engin lagaleg skylda hvílir á útgerðum eða öðrum að senda inn tilkynningar í ATVIK-sjómenn en Þorsteinn segir að fyrstu notendur kerfisins hafi séð hag sinn í því að taka þátt í þessu framtaki, enda sé það gott tæki til þess að fækka slysum.
„Næstum því“-slys mikilvæg
„Með því að taka upp ATVIK-sjómenn erum vonumst við til að hafa búið til vettvang þar sem við getum náð yfirsýn yfir öll óhöpp á sjó, að við séum með rétta tölfræði. Þetta er heimagerður skráningargrunnur sem getur nýst öllum, en auðvitað með ákveðnum takmörkunum vegna persónuverndar,“ segir Þorsteinn.
Góður árangur hefur náðst á undanförnum árum við að fækka alvarlegum slysum á sjó en engu að síður verða enn rúmlega 100 óhöpp á ári. Til þess að ráða niðurlögum þeirra segir Þorsteinn ekki aðeins mikilvægt að skrá þau samviskusamlega heldur jafnframt að tilkynna um öll „næstum því“-slys eins og þau eru kölluð – óhöpp á sjó sem hefðu getað leitt til slyss, þrátt fyrir að allt hafi farið á besta veg.
„Það eru einfaldlega ekki nógu mörg slys tilkynnt,“ segir Þorsteinn. „Við höfum heilt yfir náð frábærum árangri í að fækka alvarlegri slysum, en við þurfum að horfa meira til minniháttar slysanna sem ekki er nógu oft greint frá. Það er nauðsynlegt ef við ætlum að útrýma þeim, því við getum ekki brugðist við einhverju sem enginn veit hvað er.“
Þorsteinn tekur sem dæmi að útgerðum og yfirvöldum gæti þótt áhugavert að heyra ef tilteknar mottur á skipum eigi það til að losna eða að einhver handrið þyki illa hönnuð. Með því að vekja máls á því í gegnum ATVIK-sjómenn mætti koma í veg fyrir að aðrir sjófarendur reki sig á sama vandamál – og um leið koma í veg fyrir möguleg slys sem af þeim gætu hlotist. Það skipti gríðarlega miklu máli fyrir forvarnarhlutverk Samgöngustofu að hafa yfirsýn yfir þessi tilfelli.
„Í framtíðinni gætu þetta orðið ómetanlegar upplýsingar. Við sjáum það á skráningargrunnum erlendis, eins og hjá Norðmönnum, að ef við náum að þroska þetta kerfi áfram gætum við náð ákveðinni forystu í þessum málum,“ segir Þorsteinn.
Betri samtenging á döfinni
Þorsteinn segir að ATVIK-sjómenn sé í áframhaldandi þróun svo að það geti orðið enn miðlægari vettvangur fyrir slysaskráningu.
Þannig standi til að kerfið geri notendum kleift að senda tilkynningar um slys beint til Sjúkratrygginga og tryggingafélaganna og koma þannig í veg fyrir tvíverknað. Í staðinn fyrir að notandinn þurfi að setja sig sjálfur í samband við alla hlutaðeigandi megi einfaldlega gera það með einum smelli í gegnum ATVIKsjómenn.
„Það er mikill vilji meðal Sjúkratrygginga og tryggingafélaga að taka þátt í þessu með okkur og vonandi klárast þessi vinna síðar á þessu ári,“ segir Þorsteinn.
Allar nánari upplýsingar um ATVIK-sjómenn má nálgast á heimasíðu Samgöngustofu og á slóðinni atviksjomenn.is.
»» sój
Greinin er úr Sjómannadagsblaðinu 2023. Hægt er að opna allt blaðið í PDF-útgáfu HÉR.
Recent Comments