Beggu og Mikka þekkja eflaust flestir sem hafa fylgst með íslensku fjölskylduefni síðustu ár, en þar hafa þau getið sér gott orð. Þá hafa þau komið fram sem kynnar Skrekks, stjórnað spurningarþættinum Krakkakviss og séð um umsjón á Krakkaskaupinu síðastliðin þrjú ár. Ofan á þetta hafa þau komið fram hér og þar sem kynnar og veislustjórar. Allt hefur þetta hlotið mikið lof áhorfenda og hlutu þau verðlaun fyrir Krakkaskaupið 2020 sem besta barna og fjölskylduefnið á Sögum, verðlaunarhátíð barna.

Begga og Mikki verða kynnar á Litla sviðinu á Grandagarði á Sjómannadaginn í ár en dagskrá verður frá 13:00 til 16:00

Hlökkum til að sjá þig!